Aðflugsljós við enda flugbrautar 13
Flugvöllur
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 1 ári síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 767
27. mars, 2020
Vísað til Skipulags- og samgönguráðs
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 7. febrúar 2020 var lögð fram umsókn T.ark Arkitekta ehf. dags. 6. janúar 2020 varðandi breytingu á deiliskipulagi Reykjavíkurflugvallar. Í breytingunni felst að endurskilgreina reit Þorragötu 24 sem lóð með sömu stærðum og skilgreiningum, samkvæmt uppdr. T.ark Arkitekta ehf. dags. 2. janúar 2019. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju.
Svar

Vísað til skipulags- og samgönguráðs.
Vakin er athygli á að erindið fellur undir lið 8.2 í gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis í Reykjavíkurborg nr. 1231/2018.

Landnúmer: 106746 → skrá.is
Hnitnúmer: 10089795