Aðflugsljós við enda flugbrautar 13
Flugvöllur
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 1 ári síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 693
10. ágúst, 2018
Samþykkt
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 27. júlí 2018 var lögð fram umsókn Hermanns Georgs Gunnlaugssonar dags. 28. júní 2018 um framkvæmdaleyfi vegna breytingu á þjónustuaðkomu að flugstöðinni á Reykjavíkurflugvelli og að Fluggörðum frá Njarðargötu og úrbóta á núverandi bílastæðum, malbika stæðin og fegra lóðina ásamt því að setja upp gjaldheimtu á bílastæðunum. Einnig er lögð fram greinargerð Teiknistofunnar Storð ehf. dags. 28. júní 2018 og uppdrættir dags. 20. júlí 2018. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 10. ágúst 2018.
Svar

Samþykkt að gefa út framkvæmdaleyfi með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 10. ágúst 2018 . Vísað til skrifstofu sviðsstjóra til útgáfu framkvæmdaleyfis. Vakin er athygli á að greiða þarf fyrir útgáfu framkvæmdaleyfis skv. gr. 5.2 í . gjaldskrá skipulagsfulltrúa nr. 1193/2016.

Landnúmer: 106746 → skrá.is
Hnitnúmer: 10089795