breyting á deiliskipulagi
Funahöfði 19
Síðast Vísað til verkefnisstjóra á fundi fyrir 1 ári síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 888
13. október, 2022
Annað
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 15. september 2022 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 13. september 2022 þar sem sótt er um leyfi til að reisa skýli, nýjan matshluta ætlaðan efnismóttöku, pökkun og frágang, burðarvirki úr stáli, fest í steypt ankeri grafin í jörð, klætt dúk, haldið frostfríu með hitablásurum, staðsett í inngarði við hús á lóð nr. 19 við Funahöfða. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 12. október 2022.
Svar

Umsögn skipulagsfulltrúa dags. 12. október 2022 samþykkt.

110 Reykjavík
Landnúmer: 110601 → skrá.is
Hnitnúmer: 10010116