Opna á milli hótelsins - Ármúla 7 og 9 og koma fyrir flótasvalir á 5 hæð
Ármúli 9
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 5 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 697
7. september, 2018
Samþykkt að grenndarkynna
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 10. ágúst 2018 var lögð fram umsókn Yrki arkitekta ehf. dags. 19. júlí 2018 varðandi breytingu á deiliskipulagi Ármúla, Vegmúla, Hallarmúla vegna lóðarinnar nr. 9 við Ármúla. Í breytingunni felst að notkun bakhússins verði breytt úr bílageymsluhúsi í bílageymsluhús/tæknirými, samkvæmt uppdr. Yrki arkitekta ehf. dags. 19. júlí 2018. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju.
Svar

Samþykkt að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir hagsmunaaðilum að Ármúla 7 og 11. Suðurlandsbraut 8 og 12.
Vakin er athygli á að umsækjandi þarf að greiða fyrir grenndarkynningu áður en kynning fer fram samkv. 7.6. gr. sjá gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis í Reykjavíkurborg nr. 1193/2016.