5 hæða verslunar- og íbúðarhúsnæði
Laugavegur 73 og Hverfisgata 92
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 4 árum síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 754
6. desember, 2019
Annað
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 14. nóvember 2019 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 12. nóvember 2019 þar sem sótt er um leyfi til að byggja 5 hæða steinsteypt hús auk kjallara með bílageymslu og stoðrýmum, á 1. hæð verður verslun og þjónusta en 10 íbúðir á 2. - 5. hæð húss á lóð nr. 73 við Laugaveg. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt tölvupósti embættis byggingarfulltrúa dags. 25. nóvember 2019 þar sem umsagnarbeiðni er dregin til baka.
Erindi fylgir ósamþykktur lóðauppdráttur nr. 1.174.0 dags. 28. nóvember 2017 og hæðablað dags. 18. júlí 2017, Skýringar hönnuðar dags. 26. september 2019, viljayfirlýsing eigenda að Hverfisgötu 92 - 94 dags. 26. september 2019, Mannvit -skýrsla um sambrunahættu dags. 26. september 2019, hljóðvistarskýrsla dags. 26. september 2019. Einnig bréf hönnuðar móttekið 1. nóvember 2019 ásamt fylgiskjal með breytingum. Mannvit - skýrsla um sambrunahættu dags. 23. maí 2018 og útreikningar á kólunartölum frá hönnuði dags. 8. nóvember 2019. Gjald k. 11.200 + 11.200
Svar

Tölvupóstur byggingarfulltrúa dags. 25. nóvember 2019 lagður fram.