(fsp) 5 nýjar íbúðir, hækkun húss, svalir, lyftuhús og þak
Suðurlandsbraut 6
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 2 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 837
15. september, 2021
Annað
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 10. september 2021 var lögð fram fyrirspurn Sævars Geirssonar f.h. Magnúsar Soffaníassonar dags. 20. ágúst 2021 um að gera fimm nýjar íbúðir í húsinu á lóð nr. 6 við Suðurlandsbraut, hækka húsið um þrjár hæðir, setja nýjar svalir á 3., 4., 5., og 6. hæð, setja lyftuhús norðan við húsið Suðurlandsbrautarmegin og setja flatt þak á húsið skv. tillögu Verkfræðistofunnar Hamraborg dags. 20. ágúst 2021. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 15. september 2021.
Svar

Umsögn skipulagsfulltrúa dags. 15. september 2021 samþykkt.