breyting á deiliskipulagi
Borgartún 8-16A
Síðast Vísað til Skipulags- og samgönguráðs á fundi fyrir 2 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 487
11. apríl, 2014
Samþykkt
Fyrirspurn
Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju umsókn Höfðatorgs ehf. dags. 23. janúar 2014 varðandi breytingu á deiliskipulagi Höfðatorgs. Í breytingunni felst lækkun á bílastæðakröfu ef um hótelstarfsemi verði að ræða, og breyting á lóðarmörkum samkvæmt uppdr. PK - arkitekta ehf. dags. 23. janúar 2014. Tillagan var auglýst frá 24. febrúar til og með 7. apríl 2014. Engar athugasemdir bárust.
Svar

Samþykkt með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa í viðauka við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar.