breyting á deiliskipulagi
Borgartún 8-16A
Síðast Vísað til Skipulags- og samgönguráðs á fundi fyrir 2 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 438
12. apríl, 2013
Annað
Fyrirspurn
Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 9. apríl 2013 þar sem spurt er hvort leyft yrði að starfrækja veitingahús í flokki III (en til vara í flokki II) á fyrstu hæð hússins nr. 16 á lóðinni nr. 8-16 við Borgartún.
Jafnframt er spurt um aðstöðu fyrir veitingastaðinn til útiveitinga sunnan hússins.
Svar

Ekki gerðar skipulagslegar athugasemdir við að heimilaður verði veitingastaður í flokki III með opnunartíma til 23:00 á virkum dögum en til kl. 01:00 aðfararnætur föstudaga, laugardaga og sunnudaga. Sækja þarf um byggingarleyfi og leyfi til útiveitinga.