breyting á deiliskipulagi
Grjótháls 7-11
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 1 ári síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 617
19. janúar, 2017
Vísað til verkefnisstjóra
Fyrirspurn
Lögð fram fyrirspurn Urban Arkitekta ehf. , mótt. 14. desember 2016, varðandi breytingu á deiliskipulagi vegna lóðarinnar nr. 7-11 við Grjótháls sem felst í að stækka byggingarreit upp að núverandi byggingu að Grjóthálsi 9 og fella brott 3 metra breitt sund sem er eftir húsinu endilöngu, kröfu um fjölda bílastæða á lóð verði breytt þannig að í stað 1 bílastæðis á hverja 100 m2 verksmiðju, lagers og tæknirýma verði það 1 bílastæði á hverja 120 m2 húsnæðis og heimilt verði að nýta þak nýbyggingar undir bílastæði líkt og gert við Grjótháls, samkvæmt uppdr. Urban arkitekta ehf, dags. 27. nóvember 2016. Einnig er lagt fram bréf Urban arkitekta ehf., dags. 13. desember 2016.
Svar

Vísað til umsagnar verkefnisstjóra.

110 Reykjavík
Landnúmer: 111019 → skrá.is
Hnitnúmer: 10010868