breyting á deiliskipulagi
Grjótháls 7-11
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 1 ári síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 618
27. janúar, 2017
Engar athugasemdir
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 19. janúar 2017 var lögð fram fyrirspurn Urban Arkitekta ehf. , mótt. 14. desember 2016, varðandi breytingu á deiliskipulagi vegna lóðarinnar nr. 7-11 við Grjótháls sem felst í að stækka byggingarreit upp að núverandi byggingu að Grjóthálsi 9 og fella brott 3 metra breitt sund sem er eftir húsinu endilöngu, kröfu um fjölda bílastæða á lóð verði breytt þannig að í stað 1 bílastæðis á hverja 100 m2 verksmiðju, lagers og tæknirýma verði það 1 bílastæði á hverja 120 m2 húsnæðis og heimilt verði að nýta þak nýbyggingar undir bílastæði líkt og gert við Grjótháls, samkvæmt uppdr. Urban arkitekta ehf, dags. 27. nóvember 2016. Einnig er lagt fram bréf Urban arkitekta ehf., dags. 13. desember 2016. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 25. janúar 2017.
Svar

Ekki gerð athugasemd við erindið, sbr. þó skilyrði og leiðbeiningar sem fram koma í umsögn skipulagsfulltrúa dags. 25. janúar 2017.
Vakin er athygli á að erindið fellur undir gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis í Reykjavíkurborg nr. 1193/2016.

110 Reykjavík
Landnúmer: 111019 → skrá.is
Hnitnúmer: 10010868