breyting á deiliskipulagi
Grjótháls 7-11
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 1 ári síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 757
10. janúar, 2020
Vísað til verkefnisstjóra
Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynningu er lögð fram að nýju umsókn Urban arkitekta ehf. dags. 3. október 2019 ásamt bréfi dags. 2. október 2019 varðandi breytingu á deiliskipulagi Hálsahverfis vegna lóðarinnar nr. 7-9 við Grjótháls. Í breytingunni felst að hámarkshæð viðbyggingar hækkar úr 11 metrum í 15 metra, samkvæmt deiliskipulags- og skýringaruppdr. Urban arkitekta ehf. dags. 2. október 2019. Einnig er lagður fram samanburður á skuggavarpi gildandi deiliskipulags og breytingartillögu fyrir lóðina dags. 1. október 2019. Erindi var grenndarkynnt frá 27. nóvember 2019 til og með 30. desember 2019. Eftirtaldir aðilar sendu athugasemdir: Íþaka fasteignir ehf. dags. 30. desember 2019.
Svar

Vísað til umsagnar verkefnisstjóra.

110 Reykjavík
Landnúmer: 111019 → skrá.is
Hnitnúmer: 10010868