breyting á deiliskipulagi
Skeljanes 2
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 1 ári síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 889
20. október, 2022
Samþykkt
Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynningu er lögð fram að nýju umsókn a2f arkitekta ehf. dags. 9. júní 2022 um breytingu á deiliskipulagi Einarsness vegna lóðarinnar nr. 2 við Skeljanes. Í breytingunni sem lögð er til felst stækkun hússins fyrir einnar hæðar viðbyggingu, með heimild fyrir þaksvölum við suðvesturenda núverandi húss, setja tvö bílastæði á lóð ásamt niðurrifi núverandi bílskúrs, samkvæmt uppdráttum a2f arkitekta ehf. dags. 25. ágúst 2022. Tillagan var grenndarkynnt frá 20. september 2022 til og með 18. október 2022. Engar athugasemdir bárust.
Svar

Samþykkt með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa í viðauka við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar.

102 Reykjavík
Landnúmer: 106832 → skrá.is
Hnitnúmer: 10016121