breyting á deiliskipulagi
Skeljanes 2
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 1 ári síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 849
10. desember, 2021
Annað
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 21. júlí 2021 var lögð fram fyrirspurn Jóns Magnúsar Halldórssonar, dags. 20. júlí 2021, um stækkun hússins á lóð nr. 2 við Skeljanes sem felst í því að gera bílgeymslu og forstofu með þaksvölum og tröppum niður í garð, samkvæmt uppdr./fyrirspurnarteikningum K.J.ARK slf. dags. 20 júlí 2021. Einnig er óskað eftir niðurrifi á stakstæðri bílgeymslu á lóð. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 20. ágúst 2021. Lagt fram að nýju ásamt lagfærðri umsögn skipulagsfulltrúa dags. 27. ágúst 2021. Einnig eru lagðar fram nýjar fyrirspurnarteikningar K.J.ARK slf. dags. 6. október 2021. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 10. desember 2021.
Svar

Umsögn skipulagsfulltrúa dags. 10. desember 2021 samþykkt.

102 Reykjavík
Landnúmer: 106832 → skrá.is
Hnitnúmer: 10016121