framkvæmdaleyfi
Furugerði 23
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 1 ári síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 887
6. október, 2022
Samþykkt
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 15. september 2022 var lögð fram umsókn skrifstofu framkvæmda og viðhalds dags. 13. september 2022 um framkvæmdaleyfi fyrir gerð aðkomugötu að eystri enda lóðar nr. 23 við Furugerði og framlengingar á neðri enda Furugerðis með beygju inn í bílskýli í vestur enda lóðar nr. 23 við Furugerði. Einnig er lagður fram uppdr. Mannvits dags. 4. apríl 2022 og uppdr. Landslags dags. 19. mars 2021. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 6. október 2022.
Svar

Samþykkt að gefa út framkvæmdaleyfi með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 6. október 2022 . Vísað til skrifstofu sviðsstjóra til útgáfu framkvæmdaleyfis. Vakin er athygli á að greiða þarf fyrir útgáfu framkvæmdaleyfis skv. gr. 5.3 í gjaldskrá skipulagsfulltrúa nr. 1051/2022.