Breyta hluta kjallara úr sameign í séreign. Um er að ræða bæði áðurgerðar br. og framkvæmdir í kjölf.
Njarðargata 5
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 2 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 833
20. ágúst, 2021
Annað
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 13. ágúst 2021 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 10. ágúst 2021 þar sem sótt er um leyfi til að breyta innra skipulagi og eignarhaldi í kjallara, byggja svalir, bæta flóttaleiðir úr kjallara, breyta skipulagi íbúða og breyta notkun bílskúrs í vinnustofu í húsi nr. 5 á lóð við Njarðargötu. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 20. ágúst 2021.
Stækkun er: xx,xx ferm., xx,xx rúmm. Erindi fylgir bréf hönnuðar dags. 27. apríl 2021 og yfirlit breytinga, ódagsett, samþykki eigenda dags. 21. júní 2021. Umsögn burðarvirkishönnuðar dags. 29. maí 2021, bréf hönnuðar dags. 27. júlí 2021, útreikningur birtuskilyrða hönnuðar móttekið 3. ágúst 2021. Gjald kr.12.100
Svar

Umsögn skipulagsfulltrúa dags. 20. ágúst 2021 samþykkt.

101 Reykjavík
Landnúmer: 102199 → skrá.is
Hnitnúmer: 10023468