(fsp) smávöruverslun og veitingastaður
Laugavegur 4
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 2 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 647
1. september, 2017
Synjað
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 21. júlí 2017 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 18. júlí 2017 þar sem sótt er um leyfi til að breyta gluggum og hurðum og klæða með kopar götuhlið jarðhæðar Skólavörðustígs 1A á lóð nr. 4 við Laugaveg. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju. Einnig lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 25. ágúst 2017.
Erindi fylgir uppfærð brunahönnun frá Eflu dags. 11. júlí 2017.
Gjald kr. 11.000
Svar

Neikvætt, með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 25. ágúst 2017.

101 Reykjavík
Landnúmer: 101402 → skrá.is
Hnitnúmer: 10017499