(fsp) breyting á notkun húss
Suðurlandsbraut 16
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 1 ári síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 834
27. ágúst, 2021
Samþykkt
Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynningu er lögð fram að nýju umsókn Einars V. Tryggvasonar dags. 15. desember 2020 ásamt bréfi dags. 12. desember 2020 varðandi breytingu á deiliskipulagi Ármúla, Vegmúla og Hallarmúla vegna lóðarinnar nr. 16 við Suðurlandsbraut. Í breytingunni felst stækkun hússins ásamt því að setja skyggni yfir inngang á þriðju hæð og útistiga upp á þriðju hæð, samkvæmt uppdr. Einars V. Tryggvasonar dags. 28. október 2020. Einnig er lögð fram yfirlýsing/samþykki Veitna ehf. vegna spennistöðvar 518 að Vegmúla 4, ódags. Tillagan var grenndarkynnt frá 21. júlí 2021 til og með 20. ágúst 2021. Engar athugasemdir bárust.
Svar

Samþykkt með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa í viðauka við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar.