(fsp) nýtt hlutverk bygginga núverandi höfuðstöðva Landsbankans
Kvosin
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 1 ári síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 889
20. október, 2022
Annað
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 29. september 2022 var lögð fram fyrirspurn Eikar fasteignafélags hf. dags. 20. september 2022, ásamt bréfi ódags. um nýtt hlutverk núverandi höfuðstöðva Landsbankans sem staðsettar eru í Kvosinni, nánar tiltekið í Austurstræti, Hafnarstræti og Tryggvagötu, en ráðgert er að Landsbankinn flytji alla sýna starfsemi yfir í nýtt húsnæði við Austurhöfn. Einnig er lögð fram kynning tp bennett dags. í september 2022. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 20. október 2022.
Svar

Umsögn skipulagsfulltrúa dags. 20. október samþykkt.