beiðni um umsögn - MSS22110131
Laugardalur - austurhluti
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 1 ári síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 696
31. ágúst, 2018
Samþykkt
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 24. ágúst 2018 var lögð fram umsókn skrifstofu framkvæmda og viðhalds dags. 22. ágúst 2018 um framkvæmdaleyfi vegna gerðs 2,5 metra breiðs hjólastígs að hluta austan núverandi göngustígs í Laugardalnum á milli Suðurlandsbrautar og Holtavegar, samkvæmt teikningum verkfræðistofunnar Hnit h.f. dags. í ágúst 2018. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 31. ágúst 2018.
Svar

Samþykkt að gefa út framkvæmdaleyfi með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 31. ágúst 2018 . Vísað til skrifstofu sviðsstjóra til útgáfu framkvæmdaleyfis. Vakin er athygli á að greiða þarf fyrir útgáfu framkvæmdaleyfis skv. gr. 5.2 í . gjaldskrá skipulagsfulltrúa nr. 1193/2016.