Fjölbýlishús
Snorrabraut 54
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 1 ári síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 793
16. október, 2020
Vísað til verkefnisstjóra
Fyrirspurn
Lögð fram umsókn Sigurðar Hallgrímssonar dags. 22. september 2020 varðandi breytingu á deiliskipulagi Heilsuverndarreits vegna lóðarinnar nr. 54 við Snorrabraut. Í breytingunni felst að lóð nr. 454 við Snorrabraut er stækkuð um 102 m2 og lóð nr. 45A við Barónsstíg (Sundhöll Reykjavíkur) er minnkuð samsvarandi. Fyrirkomulag bílastæða á lóð Sundhallar breytist og bílastæðum fækkar lítillega. Einnig er gerð minni háttar breyting á byggingarreit Snorrabrautar 54 og byggingarmagn aukið um 400 m2 (aðallega neðanjarðar). Lóðarmörk Snorrabrautar 56 eru lagfærð í samræmi við núverandi ástand, samkvæmt uppdr. Arkþings - Nordic ehf. dags. 17. september 2020.
Svar

Vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra.
Vakin er athygli á að erindið fellur undir gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis í Reykjavíkurborg nr. 1231/2018.