breyting á deiliskipulagi
Efstasund 80
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 4 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 765
13. mars, 2020
Samþykkt
Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynningu er lögð fram að nýju umsókn Þorsteins Aðalbjörnssonar dags 28. júní 2019 varðandi breytingu á deiliskipulagi reita 1.3 og 1.4, Sundin, vegna lóðarinnar nr. 80 við Efstasund. Í breytingunni felst að bæta við nýjum byggingarreit fyrir bílskúr á lóð, samkvæmt uppdr. Alta dags 2. desember 2019. Einnig eru lögð fram ítargögn/aðaluppdrættir Art stone slf. dags. 1. desember 2019. Tillaga var grenndarkynnt frá 11. febrúar 2020 til og með 10. mars 2020. Engar athugasemdir bárust.
Svar

Samþykkt með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa í viðauka við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar.

104 Reykjavík
Landnúmer: 104969 → skrá.is
Hnitnúmer: 10008591