breyting á deiliskipulagi
Efstasund 80
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 4 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 754
6. desember, 2019
Samþykkt að grenndarkynna
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa dags. 5. júlí 2019 var lögð fram umsókn Þorsteins Aðalbjörnssonar dags 28. júní 2019 varðandi breytingu á deiliskipulagi reita 1.3 og 1.4, Sundin, vegna lóðarinnar nr. 80 við Efstasund. Í breytingunni felst að bæta við nýjum byggingarreit fyrir bílskúr á lóð, samkvæmt uppdr. Alta dags 2. desember 2019. Einnig eru lögð fram ítargögn/aðaluppdrættir Art stone slf. dags. 1. desember 2019. Erindinu var vísað til meðferðar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju.
Svar

Samþykkt að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir hagsmunaaðilum að Efstasundi 78 og 82 og Langholtsvegi 83, 85 og 87.
Erindið verður grenndarkynnt þegar umsækjandi hefur greitt fyrir grenndarkynningu sbr. 7.6. gr., gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis í Reykjavíkurborg nr. 1231/2018.

104 Reykjavík
Landnúmer: 104969 → skrá.is
Hnitnúmer: 10008591