framkvæmdaleyfi
Eiðsgrandi - Ánanaust
Síðast Vísað til verkefnisstjóra á fundi fyrir 1 ári síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 864
1. apríl, 2022
Samþykkt
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 1. apríl 2022 var lögð fram umsókn skrifstofu framkvæmda og viðhalds dags. 24. mars 2022 um framkvæmdaleyfi fyrir endurgerð göngustíga meðfram nýendurgerðum sjóvarnargörðum að Eiðsgranda - Ánanausti og fyrir gerð útsýnisstaðar við sjóvarnargarðsins, í samræmi við gildandi deiliskipulagi. Einnig er lagður fram samþykktur deiliskipulagsuppdráttur Hornsteina arkitekta ehf. dags. 5. nóvember 2021 og teikningasett Verkís dags. í mars 2022. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 8. apríl 2022.
Svar

Samþykkt að gefa út framkvæmdaleyfi með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 8. apríl 2022. Vísað til skrifstofu sviðsstjóra til útgáfu framkvæmdaleyfis. Vakin er athygli á að greiða þarf fyrir útgáfu framkvæmdaleyfis skv. gr. 5.2 í gjaldskrá skipulagsfulltrúa nr. 1551/2021.