framkvæmdaleyfi
Eiðsgrandi - Ánanaust
Síðast Vísað til verkefnisstjóra á fundi fyrir 2 árum síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 742
6. september, 2019
Samþykkt
Fyrirspurn
Lögð fram umsókn skrifstofu framkvæmda og viðhalds dags. 30. ágúst 2019 um framkvæmdaleyfi vegna Eiðsgranda. Framkvæmdin felst í gerð hjólastígs meðfram Eiðsgranda frá bæjarmörkum Seltjarnarnesbæjar að þverstíg til móts við Boðagranda. Einnig lagðar fram teikningar Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar dags. ágúst 2019. Jafnframt er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 6. september 2019.
Svar

Samþykkt að gefa út framkvæmdaleyfi með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 6. september 2019. Vísað til skrifstofu sviðsstjóra til útgáfu framkvæmdaleyfis. Vakin er athygli á að greiða þarf fyrir útgáfu framkvæmdaleyfis skv. gr. 5.2 í . gjaldskrá skipulagsfulltrúa nr. 1231/2018.