breyting á deiliskipulagi
Mýrargata 18
Síðast Vísað til Skipulags- og samgönguráðs á fundi fyrir 2 árum síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 830
21. júlí, 2021
Vísað til verkefnisstjóra
Fyrirspurn
Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju umsókn THG Arkitekta ehf. dags. 11. mars 2021 varðandi breytingu á deiliskipulagi Vesturbugtar vegna lóðarinnar nr. 18 við Mýrargötu. Í breytingunni felst að lóðarmörk Mýrargötu eru rýmkuð um 2 metra til norðurs og 3 metra til austurs auk þess að kvöð um göngustíg á milli Mýrargötu 18 og Mýrargötu 16 er felld niður, samkvæmt uppdr. THG Arkitekta ehf. dags. 2. mars 2021 og lóðarhönnun dags. 29. apríl 2021. Tillagan var auglýst frá 4. júní 2021 til og með 16. júlí 2021. Eftirtaldir sendu athugasemdir/umsögn: íbúaráð Vesturbæjar dags. 18. júní 2021, Daði Guðbjörnsson dags. 16. júní 2021 og Veitur dags. 25. júní 2021.
Svar

Vísað til umsagnar verkefnisstjóra.