breyting á deiliskipulagi
Grensásvegur 1
Síðast Frestað á fundi fyrir 1 ári síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 569
15. janúar, 2016
Vísað til Skipulags- og samgönguráðs
Fyrirspurn
Á fundi skipulagsfulltrúa 8. janúar 2016 var lögð fram umsókn Sigurðar Einarssonar, mótt. 9. desember 2015, varðandi breytingu á deiliskipulagi lóðarinnar nr. 1 við Grensásveg. Í breytingunni felst heimild til að byggja hótel á lóðinni, fækkun á heildarfjölda bílastæða í samræmi við breytta notkun byggingarinnar, tengibygging sem áður var tvær hæðir verður ein hæð og byggingarreitur fyrstu hæðar stækkar lítillega til suðurs, samkvæmt uppdr. Batterísins arkitektar ehf., dags. 9. desember 2015. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju.
Svar

Vísað til umhverfis-og skipulagsráðs.
Vakin er athygli á að erindið fellur undir gr. 7.5 í Gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis í Reykjavíkurborg nr. 1111/2014 vegna kostnaðar við skipullagsvinnu o.fl.