breyting á deiliskipulagi
Ingólfsstræti 21
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 2 árum síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 811
5. mars, 2021
Samþykkt að grenndarkynna
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 11. desember 2020 var lögð fram umsókn Studio Granda ehf. dags. 30. nóvember 2020 ásamt bréfi dags. 30. nóvember 2020 varðandi breytingu á deiliskipulagi reist 1.180.2 vegna lóðarinnar nr. 21 við Ingólfsstræti. Í breytingunni felst að endurbyggja skúrinn á baklóð og gera samtengda viðbyggingu við skúrinn í sömu stærð og sömu einkennum, samkvæmt deiliskipulags- og skuggavarpsuppdr. Studio Granda dags. 1. mars 2021. Einnig er lögð fram umsögn Minjastofnunar Íslands dags. 3. nóvember 2020 og 4. febrúar 2021. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju.
Svar

Samþykkt að grenndarkynna fyrir Ingólfsstræti 19, 21A, 21B, 21C og 21D og 23, Spítalastíg 1, 1A, 3 og Hallveigarstíg 2, 4, 6, 6A, 8 og 8A.
Erindið verður grenndarkynnt þegar umsækjandi hefur greitt fyrir grenndarkynningu sbr. 7.6. gr., sjá gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis í Reykjavíkurborg nr. 1472/2020.

101 Reykjavík
Landnúmer: 101707 → skrá.is
Hnitnúmer: 10023218