Íbúðir - 4.hæð og 5
Borgartún 6
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 3 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 796
6. nóvember, 2020
Annað
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 30. október 2020 var lögð fram fyrirspurn Richards Ólafs Briem dags. 26. október 2020 um breytingu á notkun efstu hæðar hússins á lóð nr. 6 við Borgartún úr skrifstofum í íbúðir. Einnig eru lagðar fram tillögur að annars vegar 4 íbúðum á efstu hæð og hins vegar 6 íbúðum. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 6. nóvember 2020.
Svar

Umsögn skipulagsfulltrúa dags. 6. nóvember 2020 samþykkt.

105 Reykjavík
Landnúmer: 102778 → skrá.is
Hnitnúmer: 10007621