breyting á deiliskipulagi
Sundaborg 1-15 og 8
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 3 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 806
29. janúar, 2021
Vísað til Skipulags- og samgönguráðs
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 8. janúar 2021 var lögð fram umsókn Sturlu Þórs Jónssonar dags. 18. desember 2020 varðandi breytingu á deiliskipulagi Sundaborgar 1-15 og 8. Í breytingunni felst að bætt er við heimild í skilmála til að setja upp auglýsingaskilti á austurhlið Sundaborgar 1, samkvæmt uppdr. Sturlu Þórs Jónssonar arkitekts dags. 29. nóvember 2020. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju.
Svar

Vísað til skipulags- og samgönguráðs.
Komi til auglýsingar á breytingu deiliskipulagi, þarf umsækjandi áður að greiða skv. 7.5. gr. gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu nr. 1472/2020.

104 Reykjavík
Landnúmer: 172376 → skrá.is
Hnitnúmer: 10001560