breyting á deiliskipulagi
Vindás-Brekknaás
Síðast Vísað til Skipulags- og samgönguráðs á fundi fyrir 1 ári síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 826
25. júní, 2021
Annað
476740
478474 ›
Fyrirspurn
Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju tillaga umhverfis- og skipulagssviðs að deiliskipulagi fyrir 6 lóðir við Brekknás og Vindás 1.8 ha af stærð. Svæðið er skilgreint sem íbúðarsvæði í Aðalskipulagi Reykjavikur 2010-2030 með síðari breytingum. Í aðalskipulagi segir að leyfilegt sé uppbygging á 60 íbúðum auk búsetukjarna fyrir fatlaða, samkvæmt uppdr. Landmótunar dags. 29. janúar 2021. Tillagan var auglýst frá 2. mars 2021 til og með 13. apríl 2021. Eftirtaldir sendu athugasemdir/umsögn: Telma Dögg Óskarsdóttir dags. 20. mars 2021, Pálmi Jón Gíslason dags. 12. apríl 2021, Steinunn Þorleifsdóttir dags. 12. apríl 2021, Veitur ohf. dags. 13. apríl 2021, Kamilla Mist Gísladóttir dags. 13. apríl 2021, Gerður Ríkharðsdóttir, tveir póstar, dags. 13. apríl 2021, Matthías Pálmason dags. 13. apríl 2021, Adolf Freyr dags. 13. apríl 2021, Friðrik Þorbergsson dags. 13. apríl 2021 og Jóhanna Gunnarsdóttir dags. 13. apríl 2021. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 16. apríl 2021 og er nú lagt fram að nýju.
Svar

Vísa til skipulags- og samgönguráðs.