breyting á deiliskipulagi
Vindás-Brekknaás
Síðast Vísað til Skipulags- og samgönguráðs á fundi fyrir 1 ári síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 873
20. júní, 2022
Samþykkt
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa dags. 10. júní 2022 var lögð fram umsókn skrifstofu framkvæmda og viðhalds dags. 2. júní 2022 um framkvæmdaleyfi vegna gatna- og stígagerðar í nýjum íbúðakjarna við Brekknaás. Einnig er lagt fram teikningasett dags. í apríl 2022. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 15. júní 2022.
Svar

Samþykkt að gefa út framkvæmdaleyfi með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 15. júní 2022. Vísað til skrifstofu sviðsstjóra til útgáfu framkvæmdaleyfis.
Vakin er athygli á að greiða þarf fyrir útgáfu framkvæmdaleyfis skv. gr. 5.2 í . gjaldskrá skipulagsfulltrúa nr. 1551/2021.