starfsemi Ísteka ehf.
Grensásvegur 8 og Eirhöfði 13 og 15
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 2 árum síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 665
19. janúar, 2018
Annað
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 8. desember 2017 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 5. desember 2017 þar sem sótt er um leyfi til að koma fyrir svölum og flóttastiga á suðvesturgafli og svölum á norðausturgafli, koma fyrir þakgluggum og innrétta gististað í flokki II, teg. b fyrir xx gesti á 2. - 4. hæð skrifstofuhúss á lóð nr. 8-10 við Grensásveg. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 19. janúar 2018.
Gjald kr. 11.000
Svar

Umsögn skipulagsfulltrúa samþykkt, dags. 19. janúar 2018.