Breytingar á mhl.05 - BN057713
Borgartún 24
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 1 ári síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 734
28. júní, 2019
Vísað til verkefnisstjóra
Fyrirspurn
Lögð fram umsókn Yrki arkitekta ehf. dags 21. júní 2019 varðandi breytingu á deiliskipulagi fyrir lóðina nr. 24 við Borgartún. Í breytingunni felst niðurrif eldri bygginga á lóðinni, stækkun bílakjallara, setja inn bindandi byggingarlínu við Borgartún, innsetning ákvæða varðandi einstaka minniháttar byggingarhluta á þak og inndregning byggingarinnar á 1. og 2. hæð á horni Borgartúns og Nóatúns um 4 metra, samkvæmt uppdrætti Yrki arkitekta ehf. dags 12. júní 2019.
Svar

Vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra.
Vakin er athygli á að erindið fellur undir gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis í Reykjavíkurborg nr. 1231/2018.