Breytingar á mhl.05 - BN057713
Borgartún 24
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 1 ári síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 819
7. maí, 2021
Annað
Fyrirspurn
Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 20. apríl 2021 þar sem sótt er um leyfi til að byggja 3-7 hæða fjölbýlishús með 64 íbúðum, verslunarrýmum á jarðhæð og bílakjallara fyrir 39 bíla á lóð nr. 24 við Borgartún. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 7. maí 2021.
Erindi fylgir greinargerð um hljóðvist dags. 18. maí 2020, brunahönnun frá Mannvit dags. 12. maí 2020 og yfirlit breytinga. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 12. febrúar 2021 fylgir erindi, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 12. febrúar 2021. Einnig fylgir bréf skipulagsfulltrúa dags. 16. febrúar 2021. Stærð, mhl. 05, A + B-rými: 9.232,2 ferm., 28.090,9 rúmm. Gjald kr. 11.200
Svar

Ekki eru gerðar athugasemdir við erindið. Samræmist deiliskipulagi, sbr. umsögn skipulagsfulltrúa dags. 7. maí 2021.