Breytingar á mhl.05 - BN057713
Borgartún 24
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 1 ári síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 752
22. nóvember, 2019
Vísað til verkefnisstjóra
Fyrirspurn
Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju umsókn Yrki arkitekta ehf. dags 21. júní 2019 varðandi breytingu á deiliskipulagi fyrir lóðina nr. 24 við Borgartún. Í breytingunni felst í megin atriðum að heimilt verður niðurrif eldri frambyggingar á lóðinni og stækkun bílakjallara undir henni. Bundið er að nýbyggingin leggist í sömu línu að Borgartúni og sé hornskorin á horni Borgar- og Nóatúns á 1. og 2. hæð, samkvæmt uppdr. Yrki arkitekta ehf. dags. 12. júní 2019, breytt 16. ágúst 2019. Einnig er lagt fram bréf Aðalsteins Steinþórssonar, Birnu Stefnisdóttur, Geirs Sigurðssonar og Matthildar Skúladóttur dags. 27. ágúst 2019. Tillagan var auglýst frá 2. október 2019 til og með 13. nóvember 2019. Eftirtaldir aðilar sendu athugasemdir: 10 íbúar og eigendur að Mánatúni 13, 15 og 17 dags. 11. nóvember 2019, Gunnar A. Óskarsson arkitekt f.h. Smith & Norland hf. dags. 13. nóvember 2019 og Páll V. Bjarnason f.h. Regins atvinuhúsnæðis ehf. dags. 13. nóvember 2019.
Svar

Vísað til umsagnar verkefnisstjóra.