Breytingar á mhl.05 - BN057713
Borgartún 24
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 1 ári síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 626
17. mars, 2017
Annað
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 10. mars 2017 var lögð fram fyrirspurn THG Arkitekta ehf. , mótt. 23. febrúar 2017, varðandi breytingu á deiliskipulagi fyrir lóðina nr. 24 við Borgartún sem felst í að heimilt verði að vera með atvinnustarfsemi á jarðhæð hússins og íbúðir á efri hæðum. Einnig er lögð fram tillaga THG Arkitekta ehf. , ódags. Fyrirspurninni var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 24. mars 2017.
Svar

Umsögn skipulagsfulltrúa dags. 24. mars 2017 samþykkt.