breyting á deiliskipulagi
Ármúli 3
Síðast Vísað til Skipulags- og samgönguráðs á fundi fyrir 3 árum síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 567
18. desember, 2015
Synjað
Fyrirspurn
Á fundi skipulagsfulltrúa 27. nóvember 2015 var lögð fram fyrirspurn Zeppelin ehf. , mótt. 20. nóvember 2015, varðandi hækkun hússins á lóð nr. 3 við Ármúla um eina hæð ásamt breytingu á útliti hússins, samkvæmt tillögu ódags. Einnig er lagt fram bréf Zeppelin arkitekta ehf., dags. 18. nóvember 2015, og umboð Arnars Hallssonar framkvæmdastjóra framkvæmdasviðs Eikar, dags. 20. nóvember 2015. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 18. desember 2015.
Einnig er lögð fram umsögn Borgarsögusafns, dags. 17. desember 2015 ásamt ábendingu fornleifadeildar Borgarsögusafns dags. 16. desember 2015.
Svar

Neikvætt, með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa, dags. 18. desember 2015.