framkvæmdaleyfi
Skógarvegur
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 1 ári síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 888
13. október, 2022
Samþykkt
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 29. september 2022 var lögð fram umsókn skrifstofu framkvæmda og viðhalds, dags. 27. september 2022, um framkvæmdaleyfi fyrir gerð malbikaðra stíga og steyptra stétta að Skógarvegi og niður að Lautarvegi ásamt frágangi á grassvæðum umhverfis framkvæmdasvæði. Einnig er lögð fram yfirlitsmynd Eflu, dags. 22. september 2022, sem sýnir yfirborðsfrágang. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 11. október 2022.
Svar

Samþykkt að gefa út framkvæmdaleyfi með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 11. október 2022. Vísað til skrifstofu sviðsstjóra til útgáfu framkvæmdaleyfis. Vakin er athygli á að greiða þarf fyrir útgáfu framkvæmdaleyfis skv. gr. 5.3 í gjaldskrá skipulagsfulltrúa nr. 1051/2022.