framkvæmdaleyfi
Gufunesvegur
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 1 ári síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 885
19. september, 2022
Samþykkt
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 15. september 2022 var lögð fram umsókn Ljósleiðarans ehf. dags. 31. ágúst 2022 um framkvæmdaleyfi fyrir lagningu ljósleiða sem felst í að grafa skurði, leggja í þá rör og ganga frá yfirborði jarðvegs. Yfirborðsfrágangur er gerður í uppsöfnun. Einnig er lagður fram uppdr. Ljósleiðarans dags. 24. ágúst 2022. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 19. september 2022.
Svar

Samþykkt að gefa út framkvæmdaleyfi með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 19. september 2022. Vísað til skrifstofu sviðsstjóra til útgáfu framkvæmdaleyfis. Vakin er athygli á að greiða þarf fyrir útgáfu framkvæmdaleyfis skv. gr. 5.2 í gjaldskrá skipulagsfulltrúa nr.1051/2022.