Bæta við glerhýsi og svölum. Færsla á aðalinngangi. og áður gerðar breytingar.
Langagerði 118
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 1 ári síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 890
27. október, 2022
Samþykkt
Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynningu er lagt fram að nýju erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 30. ágúst 2022 þar sem sótt er um leyfi til að gera garðskála við 1. hæð, færa aðalinngang til, auk þess sem gerð er grein fyrir áður gerðum breytingum, þar sem m.a. er búið að breyta innra skipulagi fyrstu hæðar og gerð hurð út í garð á vesturhlið húss á lóð nr. 118 við Langagerði. Erindi var grenndarkynnt frá 19. september 2022 til og með 17. október 2022. Engar athugasemdir bárust.
Svar

Samþykkt með vísan til viðauka um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar.
Vísað til fullnaðarafgreiðslu byggingarfulltrúa.

108 Reykjavík
Landnúmer: 108588 → skrá.is
Hnitnúmer: 10015003