Bráðabirgðahúsnæði - leikskóli
Dyngjuvegur 18
Síðast Vísað til Skipulags- og samgönguráðs á fundi fyrir 1 ári síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 871
3. júní, 2022
Engar athugasemdir
Fyrirspurn
Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 31. maí 2022 þar sem sótt er um leyfi til að reisa sex deilda leikskóla fyrir 100 börn á meðan unnið er að endurbótum núverandi mannvirkja á lóð, um er að ræða byggingu úr forsmíðuðum gámaeiningum á einni hæð með stjórnunarrými, sérkennslurými, móttökueldhúsi og stoðrýmum, staðsett á núverandi bílastæði sunnan við hús á lóð nr. 18 við Dyngjuveg.
Svar

Ekki eru gerðar skipulagslegar athugasemdir við erindið. Byggingarleyfisumsókn verður grenndarkynnt berist hún.

104 Reykjavík
Landnúmer: 104902 → skrá.is
Hnitnúmer: 10008484