(fsp) skipting lands í tvö smábýli
Kjalarnes, Horn
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 1 ári síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 881
25. ágúst, 2022
Annað
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 11. ágúst 2022 var lögð fram fyrirspurn Hrannar Scheving Guðmundsdóttur, dags. 4. ágúst 2022, um að skipta landi Horns á Kjalarnesi (fasteignanr. 125864) í tvo hluta, samkvæmt meðfylgjandi mynd, ódags. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju.
Svar

Ekki eru gerðar athugasemdir við að fyrirspyrjandi láti vinna tillögu að breytingu á deiliskipulagi í samræmi við erindið, á eigin kostnað. Tillagan verður grenndarkynnt þegar hún berst.