(fsp) fjölgun íbúða
Laugavegur 147
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 1 ári síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 868
13. maí, 2022
Annað
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 29. apríl 2022 var lögð fram fyrirspurn Eyjólfs Edvards Jónssonar dags. 18. mars 2022 um að breyta íbúð merkt 0102 í húsinu á lóð nr. 147 við Laugaveg í tvær íbúðir, samkvæmt skissu ódags. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 12. maí 2022.
Svar

Með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 12. maí 2022 eru ekki gerðar athugasemdir við að umsækjandi láti vinna tillögu að breytingu á deiliskipulagi í samræmi við erindið, á eigin kostnað.

105 Reykjavík
Landnúmer: 102864 → skrá.is
Hnitnúmer: 10018258