Stækka bíslag, nýjar svalir, kvistur, pallur
Stýrimannastígur 6
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 1 ári síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 877
14. júlí, 2022
Samþykkt
Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynningu er lagt fram að nýju erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 24. maí 2022 þar sem sótt er um leyfi til að stækka bíslag, endurgera svalir á austurhlið, koma fyrir nýjum svölum og bíslagi á vesturhlið, gera kvist á suðurhlið og koma fyrir nýjum palli við norðurhlið húss á lóð nr. 6 við Stýrimannastíg. Erindi var grenndarkynnt frá 13. júní 2022 til og með 12. júlí 2022. Engar athugasemdir bárust.
Svar

Samþykkt með vísan til viðauka um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar.
Vísað til fullnaðarafgreiðslu byggingarfulltrúa.

101 Reykjavík
Landnúmer: 100458 → skrá.is
Hnitnúmer: 10021911