Fjölgun eigna - breyting á stigahúsi + svalir
Snorrabraut 85
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 1 ári síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 861
18. mars, 2022
Samþykkt að grenndarkynna
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 11. mars 2022 var lagt fram erindi frá afreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 8. mars 2022 þar sem sótt er um leyfi til að fjölga eignum með því að gera efri hæð íbúðar 01-0201 að séreign, framlengja stiga sameignar upp á þriðju hæð, breyta innra skipulagi og bæta við svölum á austurhlið annarrar hæðar á húsi á lóð nr. 85 við Snorrabraut. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju.
Svar

Samþykkt að grenndarkynna framlagða byggingarleyfisumsókn fyrir hagsmunaaðilum að Snorrabraut 83 og 87 og Bollagötu 2.
Vakin er athygli á að greiða þarf fyrir grenndarkynningu áður en kynning fer fram samkv. 8.1. gr. gjaldskrá skipulagsfulltrúa nr. 1551/2021.

105 Reykjavík
Landnúmer: 103385 → skrá.is
Hnitnúmer: 10018581