breyting á deiliskipulagi
Korngarðar 13
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 1 ári síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 888
13. október, 2022
Samþykkt
Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynningu er lögð fram að nýju umsókn Guðmundar Odds Víðissonar dags. 3. nóvember 2021 ásamt greinargerð dags. 3. nóvember 2021 varðandi breytingu á deiliskipulagi Skarfabakka, Klettasvæðis, vegna lóðarinnar nr. 13 við Korngarða. Í breytingunni felst að legu byggingarreita er breytt ásamt því að breytt er nýtingarhlutfall fyrir millipalla úr 0,1 í 0,4, samkvæmt uppdr. DAP ehf. dags. 15. mars 2022, br. 12. október 2022. Einnig er lagt fram bréf Faxaflóahafna sf. dags. 25. október 2021. Tillagan var grenndarkynnt frá 9. maí 2022 til og með 16. júní 2022. Eftirtaldir sendu athugasemdir: ARTA lögmanna f.h. Fóðurblöndunnar hf. dags. 27. maí 2022 og Faxaflóahafnir dags. 3. júní 2022. Einnig er lögð fram umsögn Veitna dags. 15. júní 2022. Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 29. september 2022 var umsækjanda bent á að hafa samband við embætti skipulagsfulltrúa og er erindið nú lagt fram að nýju. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 13. október 2022.
Svar

Samþykkt með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 13. október 2022 sbr. a. lið 2. gr. í viðauka 2.3 um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa nr. 1020/2019.

104 Reykjavík
Landnúmer: 103902 → skrá.is
Hnitnúmer: 10108521