breyting á deiliskipulagi
Stefnisvogur 1 og 2 (reitir 1-2 og 1-6)
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 1 ári síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 869
19. maí, 2022
Vísað til Skipulags- og samgönguráðs
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 29. apríl 2022 var lögð fram umsókn Hjalta Brynjólfssonar dags. 13. apríl 2022 varðandi breytingu á deiliskipulagi Vogabyggðar svæðis 1 vegna lóðanna nr. 1 og 2 við Stefnisvog (reitir 1-2 og 1-6). Eftirfarandi breytingar eru gerðar á lóð 1-2: Byggingarmagn bílgeymslu neðanjarðar eykst (flyst til frá lóð 1-6) og lóð 1-2 leysir bílastæði innan eigin lóðar. Byggingarmagn B-rýmis eykst um 30 m2. Heildarbyggingarmagn lóðar eykst. Eftirfarandi breytingar eru gerðar á lóð 1-6: Fjórir húshlutar í stað þriggja ofan á bílageymslu og bundin byggingarlína íbúðarhús ofan á bílgeymslu breytist samhliða. Byggingarreitur og skörð með dvalarsvæðum milli húshluta breytast/færast til. Íbúðum er fjölgað úr 51 íbúð í 60 íbúðir. Byggingarmagn bílgeymslu neðanjarðar minnkar (flyst til yfir á lóð 1-2) og lóð 1-6 leysir bílastæði innan eigin lóðar. Byggingarmagn neðanjarðar eykst. Heildarbyggingarmagn lóðar minnkar. Fjórar innkeyrslur í bílgeymslu í stað þriggja. Ofanvatnslausnir og svæði með gegndræpu yfirborði breytist í samræmi við breytingu á húshlutum, samkvæmt deiliskipulags- og skýringaruppdr. Arkþing/Nordic ehf. ódags. Einnig eru lagðir fram skilmálar fyrir húsbyggingar og mannvirki á lóð dags. 26. janúar 2018, síðast br. 5. apríl 2022. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju.
Svar

Vísað til skipulags- og samgönguráðs.
Komi til auglýsingar á breytingu deiliskipulagi, þarf umsækjandi áður að greiða skv. 7.5. gr. í gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis í Reykjavíkurborg nr. 1551/2021.