Breyting á BN055882 - mathöll og viðbygging
Pósthússtræti 5
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 2 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 837
15. september, 2021
Annað
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 10. september 2021 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 7. september 2021 þar sem sótt er um leyfi til þess að breyta núverandi starfsemi á 1. hæð í Mathöll með alls 12 rekstrareiningar í flokki ll, tegund C, sem rúma samtals 161 sæti á 1. hæð og 28-50 í kjallara, endurbyggja skúr og bæta við glerbyggingu á baklóð húss nr. 3 sem verður hluti Mathallar í verslunar- og skrifstofuhúsi á lóð nr. 5 við Pósthússtræti. Afgreiðist samhliða erindi BN059551. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. X15. september 2021.
Stærð´: óbreytt. Erindi fylgir yfirlit breytinga á A3 afriti af teikningum samþykktum 26. mars 2019. Gjald kr. 11.200
Svar

Umsögn skipulagsfulltrúa dags. 15. september 2021 samþykkt.