breyting á deiliskipulagi
Járnslétta 8
Síðast Vísað til Skipulags- og samgönguráðs á fundi fyrir 2 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 861
18. mars, 2022
Vísað til Skipulags- og samgönguráðs
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 11. mars 2022 var lögð fram umsókn Kristjáns Ásgeirssonar dags. 25. febrúar 2022 ásamt bréfi dags. 25. febrúar 2022 varðandi breytingu á deiliskipulagi Esjumela vegna lóðarinnar nr. 8 við Járnsléttu. Í breytingunni felst stækkun á byggingarreit lóðarinnar vegna áætlana um byggingu viðbótar stakstæðrar einnar hæðar byggingar á lóðinni, samkvæmt uppdr. ALARK arkitekta ehf. dags. 25. febrúar 2022. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju.
Svar

Vísað til skipulags- og samgönguráðs.
Vakin er athygli á að greiða þarf fyrir óveruleg breytingu á deiliskipulagi á grundvelli málsmeðferðar skv. 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga og þarf að greiða skv. 8.2. gr. gjaldskrá skipulagsfulltrúa nr. 1551/2021 áður en breytingin er auglýst í B- deild Stjórnartíðinda.