Svalir - 1. 2. og 3ju hæð
Njálsgata 77
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 2 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 840
8. október, 2021
Samþykkt að grenndarkynna
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 1. október 2021 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 21. september 2021 þar sem sótt er um leyfi til að koma fyrir svölum á 1. 2. og 3. hæð fjölbýlishúss á lóð nr. 77 við Njálsgötu. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 27. ágúst 2021 fylgir erindi, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 26. ágúst 2021. Einnig fylgir bréf skipulagsfulltrúa dags. 30. ágúst 2021. Gjald kr. 12.100
Svar

Samþykkt að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir hagsmunaaðilum að Njálsgötu 75 og 79.
Byggingarleyfisumsókn verður grenndarkynnt þegar umsækjandi hefur greitt fyrir grenndarkynninguna, sbr. 8.1. gr. í gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis í Reykjavíkurborg nr. 1472/2020.

101 Reykjavík
Landnúmer: 102478 → skrá.is
Hnitnúmer: 10023444